• UPPSKRIFTIR
  • BLOGGIÐ
Kökudagbókin
  • UM SÍÐUNA
    • FJÖLMIÐLAR
  • FAQ
  • HAFÐU SAMBAND
  • UPPSKRIFTIR
  • BLOGGIÐ
  • UM SÍÐUNA
    • FJÖLMIÐLAR
  • FAQ
  • HAFÐU SAMBAND
05/11/2015  |  By Eva In ALL, Jól, Konfekt, Uppskriftir

Cashew Skjaldbökur

Mikið vona ég að fyrirsögnin hafi vakið áhuga ykkur á uppskrift dagsins. Góðgætið sem varð fyrir valinu í dag voru semsagt Cashew Skjaldbökur. Mér finnst þetta algjört lostæti en ég sá þetta í Bandaríkjunum í einni af súkkulaðiverslunum sem ég heimsótti nú í haust.

Þetta er í raun afskaplega einfalt, smá hrúga af cashew hnetum með karamellu og súkkulaði, svo einfalt er það!

Ferlið tók mig um 1 klst en þetta er létt og einföld vinna. Í stuttu máli er brætt súkkulaði, gerð smávægileg karamella og öllu skellt saman í réttri röð. Ég ætla leyfa uppskriftinni og myndunum að tala fyrir sínu en ég notaði uppáhálds karamellu uppskriftina mína en ég helmingaði hana fyrir þessa dásemd.

Verði ykkur að góðu!

 

Cashew skjaldbökur
Votes: 1
Rating: 5
You:
Rate this recipe!
Prenta uppskrift
Lesið leiðbeiningarnar vel áður en þið byrjið. Í stuttu máli er ferlið svona, (1) Setjið súkkulaði yfir vatnsbað og bræðið rólega, (2) gerið karamelluna, (3) undirbúið botnana meðan karamellan mallar, (4) hellið karamellunni yfir og að lokum smá súkkulaði. Leyfið að stífna.
  • RétturKonfekt
  • MáltíðKonfekt
Fjöldi Undirbúningur
12 stk 40 mín
Baksturstími Biðtími
1 klst 20 mín
Fjöldi Undirbúningur
12 stk 40 mín
Baksturstími Biðtími
1 klst 20 mín
Cashew skjaldbökur
Votes: 1
Rating: 5
You:
Rate this recipe!
Prenta uppskrift
Lesið leiðbeiningarnar vel áður en þið byrjið. Í stuttu máli er ferlið svona, (1) Setjið súkkulaði yfir vatnsbað og bræðið rólega, (2) gerið karamelluna, (3) undirbúið botnana meðan karamellan mallar, (4) hellið karamellunni yfir og að lokum smá súkkulaði. Leyfið að stífna.
  • RétturKonfekt
  • MáltíðKonfekt
Fjöldi Undirbúningur
12 stk 40 mín
Baksturstími Biðtími
1 klst 20 mín
Fjöldi Undirbúningur
12 stk 40 mín
Baksturstími Biðtími
1 klst 20 mín
Hráefni
Botnar og skreyting
  • 250 gr cashew hnetur t.d. einn poki frá H-Berg
  • 150 gr Súkkulaði eftir smekk
Karamellan
  • 150 gr Sykur
  • 2 msk Vatn
  • 45 gr Golden síróp
  • 125 ml Rjómi
  • 35 gr Smjör, ósaltað
  • 1/2 tsk Salt
  • 1/4 tsk Vanilludropar
Magn stk
Mælieining:
Aðferð
Karamellan
  1. Setjið sykur, síróp og vatn í stóran pott (1-2 ltr) og hitið þangað til blandað er orðin fallega gulllin brún og munið að hræra ekki, fylgist með og farið í að hita rjómann.
  2. Rjómi, smjör og salt sett saman í pott og hitað að suðu og þangað til smjörið er að fullu bráðið.
  3. Þegar sykurblandan er klár, slökkvið undir og hellið rjómablöndunni varlega saman við. Þetta mun stækka í tvöfalt/ þrefalt og er það alveg eðlilegt.
  4. Hrærið vanilludropunum saman við og kveikið aftur á hellunni. Hitið þangað til blandan nær 115-120°C. Best er að nota sykurhitamæli til þess en þetta getur tekið 10-20 mínútur eftir því hversu heit hellan er.
  5. Þegar allt er klárt er karamellunni hellt yfir klasann. Ef þið eigð afgang, þá er um að gera skella henni í mót, kæla í nokkrar klst og skera í hæfilega munnbita.
Botnar og skraut
  1. Meðan karamellan mallar, bræðið súkkulaði rólega, helst yfir vatnsbaði eða í súkkulaðipotti.
  2. Vigtið 12 stk af cashew klösum. Ca 20 gr hver skjaldbaka.
  3. Notið matskeið og setjið hæfilegt magn af bræddu súkkulaði þar sem skjaldbaka á að vera. Setjið vigtaða hrúfu á hvert, þetta er botninn.
  4. Þegar karamellan er klár, hellið hæfilegu magni yfir hverja hrúgu. Setjið allt saman í kæli þangað til karamellan stífnar. Ca 10-15 mínútur.
  5. Notið matskeið til að setja súkkulaði yfir hverja skjaldböku og jafnið með bakhlið skeiðarinnar.
  6. Leyfið súkkulaðinu að harðna á borði eða skellið í kæli ef tíminn er knappur.
Aðrar upplýsingar

Karamellan má fara í allt að 150°C , fer eftir því hversu seiga eða stökka karamellu þið viljið. Þessi er afar mjúk undir tönn.

Best að hita súkkulaðið ekki of mikið annars tapar það tempruninni og storknunareiginleikunum og þarf að tempra það upp á nýtt. Það má líka nota hjúpsúkkulaði eða blöndu af hjúpsúkkulaði og einhverju uppáhálds ef það hentar betur.

Deila uppskrift
Print Friendly, PDF & Email

Share this:

  • Email
  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest
cashew hnetur cashew klasar cashew skjaldbökur karamella Skjaldbökur söltuð karamella

Article by Eva

Previous StoryCashew skjaldbökur
Next StoryFranskar makkarónur

Related Articles

  • skjaldbokur-1
    Cashew skjaldbökur
  • theytt-soltud-karamella
    Þeytt söltuð karamella

Leave your comment Cancel Reply

(will not be shared)

LEITA

DAGATAL

July 2022
M T W T F S S
 123
45678910
11121314151617
18192021222324
25262728293031
« Mar    

NÝLEGAR FÆRSLUR

  • Öðruvísi heimagerð páskaegg
  • Páskaumfjöllun
  • Ferðalagið mikla og ný tækifæri
  • Nýtt útlit
  • Svampbotnar

MERKIMIÐAR

56% súkkulaði 70% súkkulaði air brush bolludagur Brauð brúðarterta brúðkaup döðlur Ferming flórsykur fondant gum paste haframjöl halloween hrekkjavaka hugmyndir hunang hvítur jarðarber karamella karamellur konfekt kókos leiðbeiningar Lodge muffins möndlur pottabrauð pottjárn páskaegg páskar rjómi sara bernhard sjávarsalt skírn smjörkrem sykur sykurmassi síróp sítrónur sörur súkkulaði trufflur tveggja hæða uppskrift
  • UPPSKRIFTIR
  • UM HÖFUND
  • BLOGGIÐ
  • DAGATAL
  • HAFÐU SAMBAND
©Kökudagbókin 2011-2020
loading Cancel
Post was not sent - check your email addresses!
Email check failed, please try again
Sorry, your blog cannot share posts by email.