Fyrir skömmu fékk ég beiðni frá frænku minni þar sem hún lagði fram þó nokkra kökuáskorun fyrir mig en sonur hennar og unnusta gengu í það heilaga þann 8.nóvember síðastliðinn og var ég fengin til að gera brúðartertuna fyrir stóra daginn. Ég fékk senda mynd af köku sem þau vildu fá með smávægilegum breytingum. Um var að ræða tvíhliða brúðartertu þar sem annar helmingurinn er tileinkaður brúðurinni og hinn brúðgumanum. Afraksturinn leyndi ekki á sér eins og sjá má en það sem sést ekki að kakan er einnig tvískipt að innan.
TIl að geta sýnt ykkur allt ferlið hefði ég þurft að hafa ljósmyndara mér við hlið meðan á öllum herlegheitunum stóð ásamt því að muna taka myndir af áhugaverðum áhöldum og smáatriðum en ég mun gera mitt besta til að gera kökunni góð skil.
Byrjum á byrjuninni: Kakan var ætluð um 70 gestum en slíkar kökur eru almennt ekki nema tveggja hæða þegar um svona háar og þykkar kökur er að ræða og (nema efsta kakan sé þeim mun smærri) þannig að ég nældi mér í gerviköku hjá Allt í köku til að hafa neðst. Ég byrjaði svo á að baka tvennskonar botna, Kókosbrúðartertu og Chocolate truffle Torte sem ég hef sagt ykkur frá áður, en til að hafa köku tvískipta að innan þarf að skera tertuna í helming og leggja botnana ofan á hvorn annan svo myndi hálfmána og svo er að smella hálfmánum tertanna saman. Það borgar sig að vera rausnarleg með kremið og byggja grunninn svo allt haldist vel saman.
Ég hefði vitanlega átt að byrja fyrst á að gera slaufuna og blómin nokkrum dögum fyrr svo skrautið sé fullharðnað þegar það er sett á kökuna en það sleppur að gera það einum til tveimur sólarhringum fyrr ef skrautið er ekki með þeim mun meira og þykkra Gum paste. Leiðbeiningar fyrir slaufunni má finna á CakeCentral. Rósirnar má gera á marga vegu en uppáháldsaðferðin mín í dag er að mynda keilur sem fara á vír eða tannstöngla og nota svo rósamót fyrir rósarblöðin ásamt kúluáhaldi til að þynna út jaðrana og gera rósirnar raunverulegri, til að gera laufblöðin notaði ég stimpil með rósarlaufblaði. Leyfið öllu að stífna og þorna á eggjabakkadýnum.
Þegar kökurnar voru saman komnar er gott að kæla allt vel áður en sykurmassinn er settur yfir. Ég byrjaði á að setja hvítan sykurmassa yfir allt saman og setti svo litaðan fondant yfir brúðguma megin. Þannig fékkst ákveðin dýpt á móti mynstrinu á brúðar”kjólnum”. Ég hef áður sýnt og sagt ykkur stuttlega frá því hvernig sé best að stafla kökum með bambus stoðum og fer því ekkert nánar í það hér en ítreka þó mikilvægi þess að styrkja svona háar og staflaðar tertur. Ég notaði Royal Blue frá Wilton til að lita sykurmassann en ég nota ávallt Satin Ice Sugar Icing sem fæst hjá Allt í köku. Það þurfti í raun mikið minni lit en ég átti von á.
Blómið/næluna gerði ég með Patchwork skera en “perlufestina” og línurnar gerði ég með beinum hringlaga stút, #4 fyrir perlurnar (doppurnar) og #3 fyrir línurnar. Ég mæli eindregið með meðfylgjandi uppskrift frá Wilton fyrir svona skreytingar, þ.e.a.s. línur, borða, rósir og hvaðannað sem krefst þess að það haldi lögun sinni:
Mjallhvítar-smjörkrem
- 2/3 bolli vatn
- 1/4 bolli Meringue duft frá Wilton
- 1 og 1/4 bolli Crisco feiti eða önnur álika grænmetis feiti
- 12 bollar flórsykur
- 1 tsk salt
- 2 tsk bragðefni eftir smekk, t.d. vanilludropar og smjörkremsbragð
Aðferð:
- Þeytið fyrst vatn og maregns duft þangað til vel blandað saman eða stífir toppar myndast.
- Bætið við 4 bollum af flórsykri á litlum hraða.
- Bætið rest af flórsykri og feiti saman við til skiptis þangað til allt er komið í skálina ásamt bragðefnum, áfram á lágum hraða.
- Hrærist þangað til allt er fullblandað saman.
Til að fá mynstri er best að leyfa hendinni að ráða, munið bara að halda þessu eins og lönguvitleysu þar sem þið endið hvergi og haldið áfram, langar/stuttar línur, beygjur hér og þar osfrv. Ef þið viljið fá glansáferð á kökuna mæli ég með að gera það fyrst með perludufti og pensli. Gefur skemmtilega dýpt í kökuna. Lokahnykkurinn hjá mér á kökuna var að raða rósunum, rósarblöðunm og “kjólfaldinum”, í öfugri röð. Ég flatti út smávegis af sykurmassa, eins þunnt og ég treysti mér til, skar svo til í lengjur, braut saman annan endann og myndaði fínan fald, festi svo á neðstu tertuna með sykurmassalími. Ég byrjaði á einum enda og lagði svo hvert ofan á annað. Svo eru rósirnar festar með meira lími en best er að nota mjallhvítarkremið til að festa laufblöðin í kring. Ég dustaði einnig meira perludufti yfir þann hluta.
Læt hér fylgja með nokkrar myndir til viðbótar en það vantar alveg mynd af innihaldinu þar sem tvískiptingin sést vel en gesti gátu valið að fá kókostertu, súkkulaðitertu eða sittlítið af hvoru.