Hráefni
- 300 gr Sykur
- 4 msk Vatn
- 90 gr Síróp
- 250 ml Rjómi
- 70 gr Smjör, ósaltað
- 1 tsk Sjávarsalt t.d. flögusalt frá Norðursalti
- 1/2 tsk Vanilludropar
Magn stk
Mælieining:
Aðferð
- Smyrjið og setjið smjörpappír í ferkantað form sem er 20×20 cm að stærð, leyfið pappírnum að flæða yfir á tveimur endum
- Finnið stóran og djúpan pott (ca 2 ltr eða stærri) og setjið vatn, sykur og síróp í pottinn og hitið að suðu við meðalháan hita.
- Hitið þangað til blandað er orðin fallega gulllin brún og munið að hræra ekki, fylgist með og farið í að hita rjómablönduna.
- Hitið rjóma, smjör og salt saman í potti að suðu eða örbylgjuofni.
- Þegar sykurblandan er klár, slökkvið undir og hellið rjómablöndunni varlega saman við. Þetta mun stækka í tvöfalt/þrefalt og er það alveg eðlilegt.
- Hrærið vanilludropunum saman við og kveikið aftur á hellunni. Hitið þangað til blandan nær 120°C. Best er að nota sykurhitamæli til þess en þetta getur tekið 10-20 mínútur eftir því hversu heit hellan er.
- Þegar klárt, slökkvið undir og hellið í formið og geymið í kæli í nokkrar klukkustundur eða yfir nótt.
- Takið úr kæli, leyfið að standa í skamma stund, setjið á skurðarbretti, stráið vel af flögusalti yfir og skerið í litla ferninga, tígla eða annað form. Þessi uppskrift gerir um 30-40 stórar karamellur eða 70-80 litlar konfekt karamellur.
Deila uppskrift